APS

APS Germany er þýskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur frá árinu 1933 þróað og framleitt vandaðar vörur fyrir framreiðslu, hlaðborð og bari. Fyrirtækið leggur áherslu á að sameina fallega hönnun, góða virkni og mikil gæði í vörum sem henta sérstaklega þörfum veitingastaða, hótela og mötuneyta.

Í fjölbreyttu vöruúrvali APS má meðal annars finna framreiðslubakka, skálar, körfur, drykkjarílát og ýmsar lausnir fyrir glæsilega og hagkvæma uppsetningu hlaðborða. APS starfar samkvæmt ISO 9001:2015 gæðastaðlinum og hluti vöruframleiðslunnar fer fram í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Sundern í Þýskalandi.

Vefsíða framleiðanda
Close
Close

Fyrirspurn um vöru